Adobe Flash
Útlit
| Adobe Flash | |
| Höfundur | Adobe Systems (áður þróað af Macromedia) |
|---|---|
| Stýrikerfi | Microsoft Windows, Mac OS X, Linux, Solaris, Symbian, Windows Mobile |
| Notkun | Margmiðlunarhugbúnaður |
| Leyfi | Séreignarleyfi |
| Vefsíða | Adobe Flash Platform Homepage |

Adobe Flash (áður Macromedia Flash) er margmiðlunarhugbúnaður, sem er ekki lengur studdur (nema í Kína), frá Adobe Systems sem miðlar gagnvirkni, kvikmyndum og hljóði á vefinn. Með Flash er hægt að setja rastamyndir og vigurmyndir upp á tímalínu til að útfæra hreyfingar og skrifta þær með innbyggða forritunarmálinu ActionScript. Flash-skrár (með endinguna SWF) keyra í Flash-spilara sem getur verið íforrit í vafra eða sjálfstætt notendaforrit.